
KUBO 15 15 m²
Fullbúið stúdíó með eldhúskrók og baðherbergi. Hentar fullkomlega sem gestahús, vinnustofa eða útleigueining.
Framleitt fyrir Ísland
Heilsárshús og einingahús, framleidd innandyra í verksmiðju við kjöraðstæður, afhent tilbúin til uppsetningar. Veldu hús af listanum eða fáðu hús hannað eftir þínum óskum.
Um KUBO
KUBO framleiðir heilsárshús og einingahús sem eru smíðuð innandyra í verksmiðju við kjöraðstæður. Við leggjum áherslu á vandaða framleiðslu, einfalda og nútímalega hönnun ásamt hagkvæmu verði.
Húsin okkar eru sérstaklega hönnuð til að standast íslenskt veðurfar og eru afhent tilbúin til uppsetningar, sem tryggir hraða og örugga framkvæmd. Með KUBO færðu þægilegt og endingargott heimili sem sameinar gæði, stíl og áreiðanleika.
Húsin okkar
Veldu eitt af húsunum okkar eða fáðu hús hannað eftir þínum óskum.

Fullbúið stúdíó með eldhúskrók og baðherbergi. Hentar fullkomlega sem gestahús, vinnustofa eða útleigueining.

Rúmbetra stúdíó með eldhúskrók, baðherbergi og yfirbyggðri verönd fyrir íslenskar aðstæður.

Bjart heilsárshús með opnu alrými og einu til tveimur svefnherbergjum. Fáanlegt í mörgum litum.

Tvær svítur undir einu þaki: tvö svefnherbergi, opið eldhús og stofa, valkvætt tvö baðherbergi.

L-laga hús með rúmgóðu opnu alrými, tveimur svefnherbergjum og flötu þaki, bæsuð viðarklæðning og þrefalt gler.

Aukið rými fyrir stærri fjölskyldur með opnu alrými, yfirbyggðri verönd og tveimur svefnherbergjum.

Stærsta húsið í línunni, hannað sem framtíðarheimili með rúmgóðu alrými og stórri verönd.
Eftir þínum óskum
Húsin hér að ofan eru dæmi um það sem við smíðum. Við hönnum líka hús eftir þínum óskum, hvort sem það er lítið gestahús eða stórt fjölskylduhús.
Ertu að velta fyrir þér hvort einingahús henti þér? Lestu samanburð á einingahúsi og hefðbundinni byggingu.
Segðu okkur frá þínu húsiHver eining getur verið allt að 4 m á breidd og 15 m á lengd.
Við tengjum einingar saman í stærri hús, til dæmis L-laga hús með skjólgóðri verönd.
Fjöldi svefnherbergja, eldhús, bað og gluggar eftir þínum þörfum og lóðinni.
Sama einangrun, þrefalt gler, gólfhiti og fullbúið að innan, eins og í öðrum KUBO húsum.
Ferlið
Við förum yfir þarfir þínar, lóð og óskir, og finnum réttu stærðina saman.
Húsið er framleitt innandyra í verksmiðju við kjöraðstæður, óháð veðri. Framleiðslan tekur allt að 6 mánuði.
Við finnum hagstæðan flutning til Íslands og þú tekur við húsinu á höfn. Við aðstoðum við flutning að lóð.
Við tengjum einingarnar saman og ljúkum frágangi. Undirstöður og tengingar sér fagfólk um og við bendum þér á rétta aðila.
Viltu vita meira? Lestu hvernig einingahús er flutt og sett upp.
Gæði
Vindálag, úrkoma og frost, húsin eru sérstaklega hönnuð fyrir íslenskt veðurfar.
Verksmiðjuframleiðsla við kjöraðstæður tryggir stöðug gæði og enga rakaskemmdaráhættu á byggingartíma.
Húsið er smíðað innandyra á meðan lóð og undirstöður eru undirbúnar. Á staðnum þarf aðeins að koma því fyrir og tengja.
Skilvirk framleiðsla skilar sér í betra verði, án þess að gefa afslátt af gæðum.
Spurt og svarað
Húsið kemur fullbúið að innan: 8 mm harðparket, málaðir gifsveggir, hljóðdúkur í lofti og innfelld LED lýsing. Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni og innréttingu. Eldhúsið er sérsmíðað með helluborði, ofni, viftu og ísskáp. Í KUBO 15 og 18 er eldhúskrókur með vaski og ísskáp.
Undirstöður, flutningur frá höfn að lóð, kranavinna, tenging við rafmagn, vatn og frárennsli, rotþró og teikningar fyrir leyfi. Við erum með tengiliði sem geta séð um þetta og getum boðið heildarpakka.
Framleiðslan tekur allt að 6 mánuði. Við það bætist flutningur til Íslands og uppsetning á lóð. Á meðan húsið er í smíðum getur þú undirbúið lóðina og undirstöður.
Við finnum hagstætt tilboð í flutning til Íslands og þú tekur við húsinu á höfn. Við aðstoðum þig við að finna flutning að lóðinni. Hús úr tveimur einingum tengjum við saman á staðnum og ljúkum frágangi.
Húsin standa á forsteyptum undirstöðum. Við segjum þér hvaða undirstöður þarf og hvar þær eiga að vera, samkvæmt framleiðanda, og bendum á aðila sem útvegar þær.
Teikningar og leyfi eru ekki innifalin. Framleiðsluteikningar fylgja húsinu og fagfólk færir þær yfir í þær teikningar sem þarf að skila inn. Við komum þér í samband við fagfólk og byggingarstjóra.
Útveggir eru með 150 mm steinull og gólf og þak með 200 mm. Gluggarnir eru álgluggar með þreföldu gleri.
Innrauður rafmagnsgólfhiti fylgir og tenglar fyrir rafmagnsofna eru í hverju rými. Í miklum kuldaköstum getur þurft rafmagnsofna með. Við mælum með vatnsgólfhita þar sem hitaveita er, annars varmadælu eða afkastameiri rafmagnsgólfhita, og gerum tilboð í þessar lausnir. Andvirði innifalda búnaðarins gengur þá upp í kerfið.
Já. Endanlegt skipulag er útfært með hverjum kaupanda og þú velur lit á viðarklæðningunni. Einnig er hægt að uppfæra innréttingar, gólfefni og tæki. Ef ekkert af húsunum okkar hentar smíðum við hús eftir þínum óskum.
Já. Hver eining getur verið allt að 4 m á breidd og 15 m á lengd og við tengjum margar einingar saman. Þannig getur þú fengið stærra hús eða annað form en þau sem sýnd eru hér.
Fáðu tilboð
Segðu okkur frá verkefninu þínu og við sendum þér tilboð og ráðgjöf án skuldbindinga.